Heiða Rún Sigurðardóttir, eða Heida Reed líkt og hún er kölluð ytra, hefur undanfarið vakið mikla eftirtekt fyrir leik sinn í þáttunum Poldark.
Leikkonan, sem iðulega þarf að klæðast níðþröngum lífstykkjum við tökur, tók virkan þátt í tískuvikunni í London og sat tvær tískusýningar í gær.
Klæðnaður Heiðu vakti mikla eftirtekt en tvö dress urðu fyrir valinu, líkt og fram kemur í frétt Daily Mail.
Leikkonan klæddist hvítri buxnadragt og vesti í stíl þegar hún kynnti sér nýjust línu Antonio Beradi. Seinna um daginn skellti hún sér á sýningu Roksanda, og klæddist þá dökkbláum ökklasíðum kjól.
Heiða Rún komst einnig í fréttirnar um daginn þegar hún varð fyrir því óláni að blóta í beinni útsendingu í bresku sjónvarpi, þáttastjórnanda til lítillar gleði.
Frétt mbl.is: Heiða Rún blótaði í beinni