Sofia Vergara og Joe Manganiello eru óneitanlega með myndarlegri pörum í Hollywood, og þó víðar væri leitað.
Leikkonan greindi þó frá því að í upphafi hafi henni þótt eiginmaður sinn of myndarlegur, og að hún hafi hreinlega ekki nennt að standa í því að berjast við æstar stúlkur um hylli hans.
„Ég nenni ekki að standa í þessu. Ég er of gömul til að vera að með manni sem allar stelpurnar eru á eftir. Ég er ekki að grínast, ég vildi ekki fara á stefnumót með honum vegna þess að hann er svo myndarlegur,“ játaði leikkonan í spjallþætti á dögunum.
Manganiello náði þó loks að vinna hylli leikkonunnar, en í dag eru þau hamingjusamlega gift.