Magnús Scheving og Hrefna Björk Sverrisdóttir eru trúlofuð en Magnús bað Hrefnu með pompi og prakt á veitingastaðnum ROK í kvöld þar sem þau fagna nýju árin ásamt nánustu vinum og vandamönnum. Á meðal gesta á ROK í kvöld sem er einmitt í eigu Hrefnu Bjarkar eru þau Hrefna Rósa Sætran, kokkur, Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, Ýr Þrastar, fatahönnuður, Ari Alexander, listamaður, líkamsræktardrottningin Anna Eiríksdóttir og fleiri góðir.
Magnús og Hrefna hafa verið par frá árinu 2014 en þau störfuðu saman í Latabæ.
Smartland óskar parinu hjartanlega til hamingju!