Meikar á sér afturendann

Það er greinilega ekki nóg að meika sig í framan.
Það er greinilega ekki nóg að meika sig í framan. Skjáskot / Instagram

Það er ekki tekið út með sældinni að vera stórstjarna, enda eru þær undir stöðugu eftirliti fjölmiðla sem rýna í útlit þeirra. Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian þekkir það af eigin raun, enda fer hún sjaldan út fyrir hússins dyr án þess að vera óaðfinnanlega til fara.

Flestum konum þykir eflaust nóg að skella sér í fallegan kjól, farða á sér andlitið og greiða hárið – en það þykir Kardashian ekki.

Á dögunum deildi förðunarfræðingur stjörnunnar, Mario Dedivanovic, ansi hressilegum myndum sem teknar voru þegar Kardashian var að gera sig klára fyrir VMA-verðlaunahátíðina. Þar sést glögglega að það er brýnasta nauðsyn að meika þá staði sem sést í bert hold, og svo virðist vera sem afturendinn sé þar ekki undanskilinn.

„Þið hélduð að ég myndi aðeins vinna með andlitið,“ skrifaði Dedivanovic á Instagram-síðu sína.

You thought I only worked on the face? 😂 BTS glam from the VMAs today on KKW app. #MakeupByMario

A photo posted by Mario Dedivanovic (@makeupbymario) on Dec 30, 2016 at 9:00am PST



Svona leit stjarnan út eftir yfirhalninguna.
Svona leit stjarnan út eftir yfirhalninguna. Skjáskot / Fashionista
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál