Michelle Obama, fráfarandi forsetafrú Bandaríkjanna, ætlar ekki að sitja auðum höndum eftir að hlutverki hennar í Hvíta húsin lýkur.
Samkvæmt frétt Stylist hyggst Obama leigja sér skrifstofuhúsnæði og setjast við skriftir.
Obama hefur áður sent frá sér matreiðslubók, en hún er einnig sögð vera að skrifa endurminningar sínar frá árunum í Hvíta húsinu.
„Þegar hún er tilbúin mun hópurinn okkar koma saman og setja saman áætlun,“ segir Melissa Winter, sem starfar fyrir Obama.
Winter heldur því einnig fram að Obama sé að hugleiða að skrifa barnabækur seinna meir.
„Hugsanlega gerist það þegar fram líða stundir. Það búa margar bækur innra með henni. Ég held að hún yrði dásamlegur barnabókahöfundur.“