Leikkonan Jessica Alba festi nýverið kaup á rúmlega 820 fermetra villu í Beverly Hills. Eignina keypti hún á rúmlega 1,1 milljarð króna. Í húsinu eru sjö svefnherbergi og átta baðherbergi. Það ætti því að fara vel um Alba og fjölskyldu hennar en þau eru fjögur.
Á fasteignavefnum Trulia kemur fram að öll herbergi hússins séu með glæsilegu útsýni, annað hvort í átt að sjónum eða að gljúfri. Eigninni fylgir stór og mikill garður með glæsilegri sundlaug.
Það er óhætt að segja að myndirnar tali sínu máli.