Bryan Ray er eldhress náungi sem hefur í mörg ár átt þann draum heitastan að líkast sem mest söngvaranum Britney Spears. Ray sem í dag er 31 árs hefur verið haldinn þessari þráhyggju í 14 ár og hefur á tímabilinu undirgengist rúmlega 90 aðgerðir og eytt stórum hluta tekna sinna í dýrðina.
Ray hefur þrisvar sinnum hitt Spears. Í fyrsta skiptið var það á Hawai þegar alheimurinn fylgist með því þegar Britney Spears fékk taugaáfall í beinni útsendingu er hún gekk um brókarlaus, rakaði af sér hárið og lét dólgslega.
Ray náði að spjalla við hana síðast er þau hittust en hún var að hans mati ekki sérlega kurteis við hann. Það gæti þó ekki helgast af því að hún hafi hugsanlega talið hann eltihrelli af dýrari týpunni. Myndir af Ray fylgja fréttinni en áhöld eru um hvort honum hafi tekist ætlunarverk sitt að líkjast átrúnaðargoðinu.
A photo posted by Bryan Ray (@beeray416) on Feb 6, 2017 at 11:57am PST