Fundur kanadíska forsætisráðherrans Justin Trudeau og Donald Trump forseta Bandaríkjanna hefur vakið mikla kátínu í netheimum. Fundurinn reyndist vera alger gullkista fyrir brandarasmiði og þá sér í lagi vegna mynda sem náðust af Ivönku Trump sem starði, að því er virtist, dáleidd á forsætisráðherrann.
Trudeau er af mörgum talinn alger draumaprins, enda mikið sjarmatröll. The Guardian hefur tekið saman nokkur skemmtileg tíst sem sýna að enginn er óhultur fyrir sjarma hins kanadíska forsætisráðherra. Ekki einu sinni sjálf hertogaynjan af Cambridge.
„Uppáhaldsljósmyndaefnið mitt eru giftar konur að hitta Justin,“ skrifaði einn fyndinn netverji við mynd af Trudeau og hertogaynjunni, sem virðist flissa eins og smástúlka í viðurvist hans.
Annar segir að enginn sé óhultur fyrir sjarma forsætisráðherrans, en óhætt er að segja að myndirnar sem fylgja tali sínu máli.
Þá bendir einn netverji á ástina sem Trudeau virðist hafa haft á Barack Obama, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna.