Fyrirsætan og verslunarstjórinn Andrea Röfn og fótboltamaðurinn Arnór Ingvi Traustason eru nýtt par.
Parið birti mynd af sér á Instagram fyrir þremur dögum síðan er þau eru stödd í Vín, þar sem hann er búsettur.
Hann átti stjörnuleik á EM í Frakklandi síðasta sumar og komst á lista yfir heitustu piparsveina landsins.
Hann spilar með liðinu Rapid Wien en síðasta sumar veltu menn fyrir sér hvaða drengur þetta væri eiginlega samanber þessa frétt.
Andrea Röfn er áberandi í íslenska tískuheiminum og leiðtogi þegar kemur að ráðandi straumum og stefnum hvað varðar tísku og útlit. Saman mynda þau sterka heild og þeir sem til þekkja segja að þau séu ansi lukkuleg hvort með annað.
Smartland óskar þeim til hamingju með ástina.