Ef það er eitthvað sem gerir heiminn góðan þá eru það óþekkar konur. Í myndinni First Wives Club, sem kom út 1996, segir frá þrem vinkonum sem upplifa hræðilega tíma þegar eiginmenn þeirra yfirgefa þær fyrir yngri, hressari og mun grennri konur. Það er náttúrulega ekki hægt að upplifa meiri höfnun, en vinkonurnar þrjá taka málin í sínar hendur og leita hefnda.
Myndin verður 21 árs á þessu ári. Undirrituð sá hana á sínum tíma en áttaði sig ekki á því hvað hún er miklu skemmtilegri og fyndnari í dag en fyrir 21 ári. Óborganlegir brandarar fljúga af vörum Goldie Hawn, Bette Midler og Diane Keaton sem leika hlutverk brjáluðu fyrrverandi eiginkvennanna.
Goldie Hawn á líklega bestu setningu myndarinnar en þegar vinkonur hennar spyrja hana í hvaða lýtaaðgerðum hún hafi verið þá harðneitar hún en eftir því sem drykkjunum fjölgar verður hún málglaðari. Í lok senunnar ákveður hún að segja satt og lætur þessa fleygu setningu út úr sér: “I have been freshing up a little bit.”