Tvö ný meinvörp fundust

Stefán Karl Stefánsson leikari.
Stefán Karl Stefánsson leikari. mbl.is/Rax / Ragnar Axelsson

Leikarinn Stefán Karl Stefánsson lauk krabbameinsmeðferð í apríl. Í vikunni fundust tvö ný meinvörp í lifur Stefáns. Fjölskyldan er slegin yfir þessum ótíðindum. 

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, eiginkona Stefáns, sagði frá því á Facebook að hjónin væru á leið til Danmerkur þar sem Stefán Karl fer í jáeindaskanna þar á þriðjudaginn. 

„Læknarnir hans Stefáns telja að þar sem meinin liggja utarlega í lifrinni sé vel hægt að skera hann upp og fjarlægja þau. Jáeindaskanninn mun gefa frekari upplýsingar um stöðu meinvarpa og einnig hvort eitthvað fleira er á ferðinni. Ef eitthvað fleira kemur í ljós verður staðan endurmetin,“ segir hún. 

Hún segir jafnframt að það sé þungbært að þurfa að bíða svara. 

„Við erum eðlilega hnuggin og ósköp aum yfir þessum nýfengnu fréttum en jafnframt fullviss um það að Stefán er í góðum höndum og allt verður reynt til að bæta heilsu hans.

Mig langar að segja eitthvað gáfulegt og uppbyggilegt en munnurinn er fullur af salti.

Eitt veit ég þó, að lífið er ekki í gær, ekki á morgun eða einhvern tíma seinna. Lífið er núna.“

Stefán Karl Stefánsson og Steinunn Ólína Þorsteindóttir.
Stefán Karl Stefánsson og Steinunn Ólína Þorsteindóttir. mbl.is/Golli / Kjartan Þorbjörnsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál