Leik-og söngkonan Ágústa Eva Erlendsdóttir og handboltamaðurinn Aron Pálmarsson eiga von á barni. Hún á einn son fyrir en hann er barnlaus. DV greindi frá þessu.
Parið fann ástina fyrir um ári og hafa þau nýtt hverja stund til þess að vera saman. Hún býr í Hveragerði en hann í Ungverjalandi en með góðum flugsamgöngum hafa þau náð að láta ástina vaxa og dafna.
Smartland óskar Ágústu Evu og Aroni til hamingju með fjölgunina.