Heiðrún Lind Marteinsdóttir og Hjörvar Hafliðason eiga von á barni. Hún er komin 20 vikur á leið. Parið tilkynnti um óléttuna á Instragram.
Það hefur gustað af Heiðrúnu og Hjörvari síðan þau felldu hugi saman en saman mynda þau sterka heild og eru flott saman. Bæði eru leiftandi húmoristar. Um helgina fögnuðu þau ástinni með vinafólki sínu í Belgíu og notuðu tækifærið og tilkynntu óléttuna á Instagram.
Smartland óskar parinu hjartanlega til hamingju með ávöxt ástarinnar.