Tónlistarmaðurinn Logi Pedro Stefánsson og tónlistarkonan Þórdís Björk Þorfinnsdóttir eru orðin pabbi og mamma en 1. október fæddist þeim myndarlegur sonur. Drengurinn er fyrsta barn þeirra beggja.
Logi Pedro sló í gegn með hljómsveitinni Retro Stefson og Þórdís Björk er hluti af tónlistarhópnum Reykjavíkurdætur. Þau kynntust í MH fyrir áratug og urðu strax skotin í hvort öðru. Þau eru ekki lengur par en ætla að ala son sinn upp saman, í sátt og samlyndi.
Smartland óskar þeim hjartanlega til hamingju með frumburðinn.