Fatahönnuðurinn og fyrrverandi Kryddpían Victoria Beckham virðist hafa allt í hendi sér en hún er nú í þriðja sinn á forsíðu breska Vogue.
Stílistinn Tina Outen, sem sá um hárgreiðslu Victoriu Beckham, fyrir forsíðumyndatökuna lýsti henni sem mjög skemmtilegri, og sagði að hárgreiðslan á forsíðunni hefði orðið til óvart. „Það tók örugglega minna en mínútu að setja hárið á henni upp. Þetta var bara spurning um að spenna það aðeins og vinna með það til þess að það myndi falla vel að andliti hennar,“ sagði Outen í samtali við vefsíðu Vogue og bæti við: „Victoria Beckham þekkir andlitið á sér vel, svo að hún veit hvað fer henni og hvað ekki. En hún ber einnig mikla virðingu fyrir fólkinu sem vinnur með henni og sýnir þeim traust. Hún leyfir þér að vinna þína vinnu. Hárgreiðslan varð í alvörunni til þegar þegar hún var að skipta um föt. Þá flæktist fárið á henni í flíkunum og þá varð það flott. Við gerðum það fyrir allar myndirnar – settum hárið upp og létum hana svo fara í fötin. “
Tekið var upp myndband þar sem skyggnst er bakvið tjöldin á tökustað, en í myndbandinu er meðal annars rætt við frú Beckham. „Ég er aldrei smeyk við að prufa eitthvað nýtt þegar ég vinn með besta fólkinu,“ sagði fjögurra barna móðirin og bætti við: „Að vera á forsíðu Vogue er spennandi – teymið á bakvið blaðið, ljósmyndararnir, hárgreiðslumeistararnir, förðunarfræðingarnir, það er alltaf besta fólkið sem kemur að þessum myndatökum.“
Í myndbandinu er einnig rætt við Lucindu Chalmers sem er yfirmaður tískunnar í Vogue, en hún sagði frá hugmyndinni á bakvið myndatökuna, samkvæmt heimildum Daily Mail.
„Við vildum reyna gera eitthvað sem við höfum ekki séð hana gera áður,“ sagði Chalmers og bætti við: „Hún er með ákveðið útlit, hún er töff, en fáguð og við vildum gera hana aðeins óheflaðri.“
Það er alltaf nóg að gera hjá Victoriu Beckham, en á dögunum var hún myndum í bak og fyrir á Wimbledon-mótinu sem haldið var á dögunum, en þar var hún í trufluðum kjól, sem hún hannaði sjálf.
Meðfylgjandi er bakvið tjöldin myndband Vogue.