Hönnuðirnir Mark Badgley og James Mischka fögnuðu því á tískuvikunni í New York að merki þeirra, Badgley Mischka, er 25 ára gamalt í ár og tók fyrirsætan Naomi Campbell þátt í fögnuðinum.
Badgley Mischka 2015-sumarlínan var sýnd á tískuvikunni í New York á dögunum og vakti mikla athygli. En það sem vakti ekki síður athygli var það að Naomi Campbell gekk niður tískupallinn í lok sýningarinnar ásamt hönnuðunum tveim og þar böðuðu þau sig í silfurlituðum afmælisblöðrum.
Silfurlitur er einmitt áberandi í þessari glæsilegu línu sem einkennist af fallegum síðkjólum. Fyrirsætur sýningarinnar voru svo farðaðar á athyglisverðan hátt þar sem augabrúnir þeirra voru málaðar með silfruðum og bláum lit frá MAC.