Amal Alamuddin, eiginkona George Clooney, var í sérhönnuðum kjól eftir franska hönnuðinn Oscar de la Renta í brúðkaupinu. Herra Clooney var hefðbundinn í klæðnaði og klæddist jakkafötum frá Armani.
Parið gifti sig í Feneyjum um helgina eftir sjö mánaða samband og hefur brúðkaupið vakið heimsathygli.