Fyrr í vikunni var stuttmyndin No. 5 the Film frumsýnd og mættu ótal fyrirsætur og tískuunnendur á frumsýninguna í sínu fínasta pússi.
Hin hálfíslenska India Salvör Menuez vakti hins vegar hvað mesta athygli og var klæðaburður hennar í sérstöku uppáhaldi hjá Christinu Perez, blaðamanni Glamour. „Hún er svo raunveruleg og svo girnileg,“ skrifaði Perez um Chanel-töskuna sem India var með en hún líkist beyglu með rjómaosti.
India var í svartri rúllukragapeysu og í ljósbrúnni dragt sem tónaði vel við rautt hár hennar. Þess má geta að beyglu-taskan frá Chanel er ekki komin í sölu ennþá.