Katrín Middleton tók á móti forseta Singapúr við hátíðlega athöfn í London í dag en þetta er í fyrsta sinn sem hún kemur opinberlega fram eftir að tilkynnt var að þau Vilhjálmur Bretaprins ættu von á öðru barni.
Katrín klæddist glæsilegri kápu með stóru pilsi úr smiðju Alexanders McQueens við athöfnina. Þá var hún einnig með hatt frá Jane Taylor sem hún hefur notað áður. Katrín brosti sínu breiðasta og leit vel út en undanfarið hefur hún glímt við morgunógleði.
Ekki er vitað hversu mikið þessi tiltekna kápa kostar en svipuð kápa frá Alexander McQueen kostar rúmar 400.000 krónur á heimasíðu Net-a-Porter.