Fyrrverandi fegurðardrottningin og fatahönnunarneminn Manuela Ósk Harðardóttir birti mynd af húðflúri sínu á Instagram í gær en það segir: Yggdrasil the goddess of life.
Húðflúrið er reyndar bara tímabundið og kemur úr smiðju Gyðju Collection. Manúela kaus að setja húðflúrið á innanverðan upphandlegginn og virtust vinir hennar hrifnir af hugmyndinni því hún fékk um 50 „like“ á myndina.
„Fer þér vel! Alvöru næst,“ skrifaði ein vinkona Manuelu undir myndina.
Húðflúrin frá Gyðja Collection koma nokkur saman í pakka og eru mörg þeirra gyllt eða silfurlituð.