Katrín hertogaynja af Cambridge sótti verðlaunahátíðina Place2Be Wellbeing í London í fyrradag þar sem veitt voru verðlaun fyrir framúrskarandi skólastarf. Katrín klæddist sætum topp úr versluninni Hobbs.
Katrín tók sig vel út en nú er farið að sjást örlítið á henni að hún eigin von á sínu öðru barni. Hún klæddist bláu pilsi og doppóttum toppi með belti um mittið á samkomunni.
Toppurinn er frá Hobbs og kostar um 17.000 krónur íslenskar. Að sjálfsögðu seldist toppurinn upp um leið og Katrín klæddist honum á almannafæri enda er hún tískufyrirmynd margra kvenna.