Stílistinn Olga Soffía Einarsdóttir lýsir tískunni fyrir hátíðarnar í ár sem klassískri. Olga tekur svarta kjólinn sem dæmi en einnig samfestinga. „Núna er mikið til af flottum samfestingum sem eru alveg lúmskt klæðilegir.“ Hún segir svo pallíettur og glimmer vera staðalbúnað á þessum árstíma.
„Það sem er skemmtilegt við samfestingana er að það er auðvelt að dressa þá upp og niður,“ útskýrir Olga. „Það er hægt að klæða þá niður með grófum skóm og klút eða grófu skarti, þannig verða þeir hversdagslegri. Svo er hægt að klæða þá upp með flottum hælaskóm og fínum eyrnalokkum, þá eru þeir orðnir mjög sparilegir.“
Auðvelt að klæða gamlan kjól upp
„Loðkragar eru svo góð til að gera kjólinn sparilegan,“ segir Olga aðspurð hvernig sé hægt að gera jólakjólinn sérstaklega fínan. „Litríkir jakkar eru líka góðir í að poppa upp gamlan kjól.“ Olga segir svo pallíettur og glimmer vera ómissandi í kringum hátíðarnar. „Pallíettur og glimmer eru eins og jólalögin - alveg ómissandi á þessum árstíma. Einn glimmerklútur eða pallíettupeysa getur gert alveg helling fyrir einfaldan kjól.“
„Það er um að gera að þora vera áberandi og fínn á þessum tíma. Svo verður maður að vera duglegur að hrósa öðrum,“ útskýrir Olga sem sjálf á eftir að finna sér áramótadressið. „Ég er ekki komin með neitt sérstakt áramótadress en ég á svartan kjól sem ég mun hugsanlega nota með pallíettupeysu sem ég á. Svo set ég á mig rauðan varalit og þá er þetta komið.“
Olga segir galdurinn við að klæða sig upp í miklum kulda og snjó vera góðan skóbúnað. „Aðalmálið er að vera vel skóaður og taka frekar spariskóna með í veskið. Ég er reyndar mikið fyrir að vera með húfu og fallega trefla svo mér finnst voða gaman að klæða mig upp í kulda,“ segir Olga að lokum.