Angelina Jolie og Jennifer Aniston eiga fleira sameignlegt en að hafa báðar elskað leikarann Brad Pitt. Þær eru með svipaðan fatasmekk og eru að vinna dálítið með dragtarþema þessa dagana. Þær eru þó ekki einu stjörnurnar sem hafa dálæti af þessum klæðaburði því dragtir eru töluvert vinsælar í Hollywood um þessar mundir.
Jennifer Aniston mætti í dragt frá Gucci á Critics' Choice Awards. Dragtin er rauðbrún að lit og undir henni var hún í húðlituðum bol.
Andrea Riseborough mætti í grænni dragt frá Escada á Critics' Choice Awards. Dragtarbuxurnar eru víðar með föllum að framan og jakkinn tvíhnepptur. Það er nettur níundaáratugsfílingur á dragtinni. Við hana var hún í opnum skóm.
Angelina Jolie mætti í svartri dragt á AFI Awards í Beverly Hills. Ekki er vitað hvaðan dragtin er en undir dragtinni var hún í hvítri skyrtu og auðvitað var hún með rauðan varalit til að keyra upp stemninguna.
Lorde mætti í svartri dragt á Golden Globe verðlaunin. Hún var í víðum buxum og síðum jakka og undir þessu öllu saman var hún einungin í topp. Hún var aðeins að vinna með bert á milli eins og er svo vinsælt þessa dagana.
Kristen Stewart mætti í svartri dragt þegar hún mætti í boð til Stellu McCartney á dögunum í New York þar sem hún var með forsýningu á vetrarlínu sinni 2015.
Bella Thorne mætti í svartri dragt sem var með smóking sniði. Boðungarnir á jakkanum voru úr satíni en dragtin sjálf úr vönduðu efni. Þess má geta að hún var að mæta á People's Choice verðlaunin sem haldin voru í Nokia Theatre í Los Angeles.