Þegar Victoria's Secret-fyrirsætum (VS) bregður fyrir í auglýsingum eru þær oftar en ekki léttklæddar en það á ekki við um nýjustu auglýsingu VS.
Í nýjustu auglýsingu nærfataframleiðandans VS má sjá fyrirsætur á borð við Adriönu Lima og Candice Swanepoel kappklæddar í ruðningsbúningum. Auglýsingin er innblásin af ruðningi en Bandaríkjamenn bíða margir spenntir eftir Ofurskálinni (e. Super Bowl) sem fer fram hinn 1. febrúar 2015.
Í lok auglýsingarinnar eru áhorfendur svo hvattir til að gefa konunum sínum nærföt frá Victoria's Secret á valentínusardaginn, sem er 14. febrúar.