Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian og söngkonan Rita Ora eru greinilega með svipaðan smekk en þær mættu í samskonar kjól í partý í London í gær. Þess má geta að Rita Ora er fyrrverandi mágkona Kim. Einhverjum netverjum finnst málið vandræðalegt í ljósi þess að samband þeirra Ritu Ora og Rob Kardashian, bróður Kim, var stormasamt og endaði illa.
Þær Kim og Rita Ora mættu báðar í fölbleikum latexkjól í partíið í gær. Kjólarnir voru báðir nýþröngir en þó ekki alveg eins í sniðinu. Kjólarnir koma úr smiðju AtsukoKudo.
Síðan Rita Ora og Rob Kardashian hættu saman hafa systur Rob ekki vandað söngkonunni kveðjurnar, þess vegna var engin möguleiki á að fá þær til að stilla sér upp saman fyrir ljósmyndara. Fregnir herma þá að Rita Ora hafi haldið framhjá Rob oftar en einu sinni.
Kim og Rita Ora klæddust báðar loðjakka við kjólinn en Rita Ora var fljót að fara úr sínum jakka þegar hún sá að Kim var í nánast sama dressinu.