Stórir rassar eru í tísku um þessar mundir, því verður ekki neitað, og nú hafa gallabuxnahönnuðir hugsað sér gott til glóðarinnar. Í Debenhams í Bretlandi er nefnilega hægt að kaupa sérstakar gallabuxur sem eiga að stækka venjulega rassa um nokkur númer.
Í buxunum eru ekki púðar heldur eru þær sniðnar þannig að rassinn lyftist og lítur úr fyrir að vera stærri og lögulegri en hann er. Buxurnar kosta 45 sterlingspund eða um 9.200 krónur. Talsmaður Debenhams segir buxurnar rokseljast enda dreymir marga um að vera með fullkominn afturenda. Svo eiga buxurnar einnig að slétta úr magasvæðinu, ekki slæmt það.
Á heimasíðu Daily Mail birtust myndir af konu í venjulegum gallabuxum annars vegar og í rassabuxunum hins vegar. Það verður að viðurkennast að breytingin er ótrúleg.