MTV Movie Awards-hátíðin var haldin með pomp og prakt í gær. Það var líf og fjör á rauða dreglinum, sem var reyndar blár að þessu sinni, enda skein sólin skært og stjörnurnar klæddust flestar litríkum flíkum. Jennifer Lopez mætti reyndar í kolsvartri Versace-dragt en var sumarleg enga að síður enda var hún berleggjuð.
Scarlett Johansson klæddist skærbleikum samfesting frá Zuhair Murad og fyrirsætan og leikkonan Emily Ratajkowsk klæddist skærgrænum kjól frá Fausto Puglisi sem hefur fengið misjöfn viðbrögð. Gamanleikkonan Rebel Wilson vakti þá hvað mesta athygli en hún mætti með risavaxna englavængi á bakinu.