Edit Ómarsdóttir er tveggja barna móðir og pistlahöfundur hjá Króm. Edit hefur brennandi áhuga á hönnun, tísku og öllu sem því tengist. Svo er hún alvöru tölvunörd að eigin sögn. Fatastíll Editar hefur tekið einhverjum breytingum á seinustu árum en þessa stundina er hann einfaldur.
Getur þú lýst þínum fatastíl? „Í dag myndi ég segja að stíllinn minn væri einfaldur og þægilegur, kannski smárokkaður. En ég er búin að taka út nokkur tískutímabil, ég var „hipster“ fyrir u.þ.b. tíu árum, svo breyttist ég í lattelepjandi lopatrefla-týpu og svo tók ég krúttkjóla-tímabil líka.“
Fyrir hverju fellur þú yfirleitt? „Þegar ég labba inn í fataverslanir þá dregst ég strax að yfirhöfnum, ég á aldrei of mikið af yfirhöfnum.“
Hvað er nauðsynlegt að eiga í fataskápnum sínum? „Fallegan hatt og góðar gallabuxur.“
Hvað dreymir þig um að eignast? „Michael Kors-veski og Cyclokross-hjól.“
Hver er dýrasta flíkin í fataskápnum þínum? „Canada Goose-úlpan mín held ég að sé langdýrust, fyrir utan hana þá er það fallegur svartur kjóll frá Gust.“
Hvað vantar í fataskápinn þinn? „Skipulag og eitt Michael Kors-veski.“
Í hvað myndir þú aldrei fara? „Netasokkabuxur!“
Eru einhver tískuslys í fataskápnum þínum? „Nei, ég held það sé ekkert eins og er, það getur samt vel verið að sumir séu ekki sammála mér. Er þetta ekki voða persónubundið?“
Hvað finnst þér mest heillandi í vor- og sumartískunni?
„Bóhemíski stíllinn sem er að koma sterkur inn, virkar þægilegur, engir skærir litir, allt voða einfalt og í jarðlitum. Einnig er ég rosalega hrifin af hártískunni, axlarsítt hár. Ég kvaddi löngu lokkana fyrir stuttu og ég sé sko ekki eftir því.“
Ef þú myndir vinna milljón í Happdrætti DAS, hvað myndir þú kaupa þér? „Ég myndi taka fjölskylduna mína með út í skemmtilega utanlandsferð til framandi lands.“