Tískudívan Lady Gaga deildi fyrr í vikunni ljósmyndum af sér á Instagram sem sýna hana máta stígvél frá tískuhúsi Alexander McQueen.
Gaga hefur lengi verið hrifin af hönnun McQueen. Svo hrifin að hún keypti þrjú pör á uppboði en allur ágóðinn rennur til góðgerðasamtakana UNICEF. Parið fór á allt að 39,8 milljónir á uppboðinu. Stígvélin voru hluti af seinustu línu sem McQueen hannaði áður en hann svipti sig lífi árið 2010.
Skórnir kallast „armadillo“ sem þýðir hitabeltisdýr en lögun stígvélanna minnir óneitanlega á dýrið. Stígvélin voru framleidd í Ítalíu. Þau eru úr við og snákaskinni.