Lilja Pálmadóttir klæddist hvítum kjól úr smiðju Alexander McQueen á frumsýningu Everest í Feneyjum í gær en Lilja var ekki ein um það að klæðast hvítu. Það gerðu leikkonurnar Elizabeth Banks og Diane Kruger til dæmis líka.
Diane Kruger er þekkt fyrir að vera með óaðfinnanlegan stíl en hún klæddist glæsilegum kjól frá Prada í gær. Elizabeth Banks klæddist þá kjól frá Dolce & Gabbana.
Hvíti liturinn virtist ráða ríkjum á rauða dreglinum í gær.