Margir af helstu ljósmyndurum heims eru pirraðir þessa dagana þar sem forsvarsmenn Burberry-tískuhússins ákváðu að fá son Victoriu og Davids Beckhams til að mynda nýjustu ilmvatnslínu fyrirtækisins. Brooklyn Beckham er elsti sonur ofurparsins og aðeins 16 ára gamall.
Tískuljósmyndarinn Chris Floyd, sem þekktur er fyrir myndatökur fræga fólksins, segir í viðtali við Guardian að ákvörðun Burberry endurspegli virðingarleysi í garð fagljósmyndara. Líklegast er um að ræða ansi góða markaðssetningu þar sem kappinn er með sex milljónir fylgjenda á Instagram og auðvitað sonur Victoriu og Davids Beckhams. Framkvæmdastjóri Burberry hefur tjáð sig um ákvörðun fyrirtækisins við enska miðla. Hann segir Brooklyn með næmt auga fyrir myndatöku, stíll hans og viðmót sé einmitt það sem fyrirtækið hafi verið að leita að vegna auglýsingaherferðar í tengslum við nýja ilmvatnslínu.