Leikkonan og tískugyðjan Blake Lively birti mynd á Instagram sem tekin var í skóherberberginu hennar. Herbergið lítur út fyrir að vera algjör draumur en í því er eyja með marmaraborðplötu.
Á eyjunni má sjá skemmtilegt skartgripabox með málverki af Önnu Wintour, ritstjóra Vogue, í gervi Maríu meyjar. Í bakgrunni má svo sjá glitta í skósafnið hennar Lively, dásemd.