Leikkonan Dakota Johnson mætti í gullkjól frá Marc Jacobs á frumsýningu myndarinnar How to be Single í London í gær. Kjóllinn, sem var heldur krumpaður, hefur vakið misjöfn viðbrögð.
Einhverjir netverjar hafa líkt Johnson við konfektmola í kjólnum á meðan aðrir eru hrifnir af kjólnum. Skiptar skoðanir ríkja um kjólinn en Johnson vakti þó athygli á rauða dreglinum.
Myndin How to be Single kemur í íslensk kvikmyndahús í vikunni.