Unnur Ósk Úlfarsdóttir, starfsmaður í Mathilda í Kringlunni, nýtur þess að klæða sig upp fyrir sérstök tilefni og er veik fyrir fallegum kjólum. Unnur Ósk er spennt fyrir vor- og sumartískunni og er ánægð að sjá hvað hún er kvenleg og rómantísk þetta árið. Á óskalistanum er svo Gucci-taska og Valentino-skór.
Getur þú lýst fatastílnum þínum?
„Ég klæði mig mikið eftir því skapi sem ég er í. Fatastíllinn minn er þægilegur en kvenlegur. Ég klæðist mikið svörtum gallabuxum og skyrtum og finnst gaman að vera fín. Mér finnst fátt skemmtilegra en að gera mig fína fyrir sérstök tilefni.“
Fyrir hverju fellur þú yfirleitt?
„Töskum og fallegum kjólum. Ef það er ekkert tilefni fyrir kjólinn þá er ekkert vandamál fyrir mig að finna það.“
Hvað er nauðsynlegt að eiga í fataskápnum sínum þessa stundina?
„Það er alltaf gott að eiga góðan og fallegan pels fyrir íslenska veturinn og leðurbuxur.“
Hver er nýjasta flíkin í fataskápnum þínum?
„Hinar fullkomnu svörtu „high-waisted” buxur frá Levi’s og oversized skyrta frá Hunkydory.“
Hvað vantar í fataskápinn þinn?
„Vantar mann yfirhöfuð eitthvað? Þessa stundina finnst mér mig vanta svartan mokkajakka og koníaksbrúna rúskinnsskyrtu.“
Er eitthvað sem þú myndir aldrei klæðast?
„Disco-pants sem voru svo vinsælar hér um árið.“
Áttu þér uppáhalds hönnuð?
„Ef ég ætti að velja einn þá væri það klárlega Yves Saint Laurent. Töffaraleg hönnun en á sama tíma kvenleg, sem höfðar vel til mín.“
Er einhver frægur hönnuður, hönnum eða trend ofmetið að þínu mati?
„Mér finnst ofmetið að vera eins og allir aðrir, það er best að vera alltaf maður sjálfur.“
Hvað finnst þér mest heillandi í vor-og sumartískunni?
„Ég er að fíla þessar plíseringar og fljótandi snið á tískupöllunum. Mér finnst líka skemmtilegt hvað það er mikil rómantík í gangi.“
Áttu þér tískufyrirmynd?
„Ég á mér kannski ekki eina sérstaka tískufyrirmynd en mér finnst Olivia Palermo alltaf rosalega fín, hvort sem það kemur að klæðnaði eða hári. Ég get alltaf leitað til hennar að innblæstri.“
Hvað er á óskalistanum þessa stundina?
„Teinóttur blazer frá Polo by Ralph Lauren sem fæst auðvitað í Mathildu. Svo ef ég vinn einhvern tímann í lottói þá er Gucci taska og Valentino Rockstud hælaskór efst á óskalistanum.“