Undanfarið hafa Kaffe-buxurnar svokölluðu verið gríðarlega vinsælar. Þær hafa hreinlega rokið úr hillunum og hafa jafnan verið nefndar vinsælustu buxur á Íslandi. En hvers vegna kunna íslenskar konur svona vel að meta buxurnar?
„Þetta eru bara svo þægilegar buxur. Þær eru úr joggingefni að aftan, þannig að þær teygjast vel og passa flestum. Svo eru þær ótrúlega smart. Sniðið hentar eiginlega öllum, hvort sem þú ert grannur eða með eitthvað utan á þér. Það skiptir engu máli,“ segir Anný Rut Hauksdóttir, sem starfar hjá heildsölunni Rún.
En hverju klæðast konur svo við buxurnar?
„Þær eru mjög flottar við toppa, og boli. Svo má dressa þær upp með því að fara í háa hæla. Annars eru þær líka góðar dagsdaglega,“ segir Anný.
Merkið Kaffe er ekki nýtt af nálinni, en það hefur lengi verið í sölu hér á landi. Vinsældir þess hafa þó aukist gríðarlega eftir að buxurnar umræddu fóru að fljúga úr hillunum.
„Buxurnar mokast út, og virðist ekkert lát vera á. Við höldum alltaf að vinsældirnar fari að minnka, en svo virðist ekki vera,“ segir Anný Rut að endingu.