Leikkonan Danika Yarosh kom, sá og sigraði á rauða dreglinum á frumsýningu Jack Reacher: Never Go Back í London í gær. Hún klæddist glæsilegum síðkjól frá Roksanda og vakti mikla lukku. En það er ekki á allra færi að kaupa þennan glæsilega kjól því hann kostar 1,1 milljón krónur!
En Yarosh var ekki eina sem mætti spariklædd á frumsýninguna í gær, það gerðu líka þau Tom Cruise og Cobie Smulders sem fara með hlutverk í Jack Reacher-myndinni ásamt Yarosh.