Ofurfyrirsæturnar og systurnar þær Gigi og Bella gengu tískupallinn saman á Victora Secret-tískusýningunni sem fram fór í París í vikunni. Að sýningu lokinni var fagnað með vinum og fjölskyldu en óhætt er að segja að fjölskylda þeirra systra sé gott dæmi um nútímafjölskyldu.
Stilltu þær sér meðal annars upp með móður sinni og fyrrverandi fyrirsætunni Yolanda, föður sínum Mohamad sem er sextíu og átta ára að aldri og þrjátíu ára gamalli unnustu hans.
Vakti þetta töluverða athygli, meira að segja í Hollywood.
Mohamad sem á fimm börn með tveimur konum var að vonum afar stoltur af dætrum sínum.