Samfélagsmiðlarnir hafa sjaldan verið vinsælli vettfangur en einmitt núna í heimi tískunnar en þar má finna fjöldan allan af sjálfskipuðum stjörnum, fyrirmyndum og tískuíkonum. Tískutímaritið Haarpers Bazaar tók saman á dögunum lista yfir þá Instagram-bloggara sem því þóttu hafa borið af á árinu.
Evangelie Smyrniotaki heldur úti blogginu styleheroine.com þar sem fylgjast má með fáguðum og flottum stíl hennar. Notendanafn hennar á Instagram er @styleheroine.
Hin leggjalanga og glæsilega Jennifer Grace hefur hlotið verðskuldaða athygli fyrir bloggið sitt nativefox.com, en hana má svo einnig finna á instagram undir @thenativefox
Fyrirsætan og fagurkerinn Helena Bordon þykir afar glæsileg og heldur hún úti fallegri Instagram-síðu þar sem tæplega milljón fylgjendur hennar lofsama stíl hennar og útlit @helenabordon
Töffarinn Charlotte Groeneveld heldur úti lifandi og skemmtilegri bloggsíðu Thefashionguitar.com en hún ásamt þeim fyrrnefndu heldur einnig til á Instagram: thefashionguitar
Hér má sjá listann í heild sinni: httpwww.harpersbazaar.com