Ofurparið Kylie Jenner og Tyga á götum New York-borgar í vikunni.
Í lok hverrar viku gera erlendir miðlar oft á tíðum upp vikuna með ýmsum hætti.
Á www.eonline.com er til dæmis farið yfir það hverjir báru af í klæðaburði í hverri viku og er þá bæði farið yfir myndir af stjörnunum sem gengu rauða dregilinn sem og þeim sem sáust á förnum vegi. Þetta eru þær stjörnur sem þóttu bera af í liðinni viku:
Leikarinn hressi Jeremy Piven var smart á ferðinni í Los Angeles.
Ofurfyrirsætan Adriana Lima var vægast sagt stórglæsileg á rauða dreglinum í vikunni.
Matthew McConaughey glæsilegur ásamt gullfallegu eiginkonu sinni Camila Alves á frumsýningu myndarinnar Gold í New York.
Jennifer Lopez var vægast sagt flott til fara í LA í vikunni.
Kate Upton var aldeilis flott er hún sást á leið í flug á dögunum.
Fullkomna parið Gisele Bündchen og Tom Brady voru ofurkrúttleg og vel klædd í kuldanum í Boston.