Fataherbergi leikkonunnar Catherine Zeta Jones er ekkert slor, en stjarnan veitti á dögunum innsýn í ríkmannlegan lífstíl sinn á Instagram.
Þar stærði hún sig af stærðarinnar fataherberginu, sem er troðið fallegum fatnaði og glingri. Eins og sjá má á leikkonan dágott safn af merkjavöru, skóm og fylgihlutum sem margar konur dreymir eflaust um.
Þá er leikkonan einnig hrifin af skóm, eins og margar kynsystur hennar, og á ansi marga slíka.