Tískuhúsið Balenciaga hefur sett á markað stóra tösku sem hefur vakið mikla athygli að undanförnu. Taskan þykir mjög lík bláu Ikea-pokunum sem svo margir eiga. En liturinn, stærðin og hönnunin er ansi lík.
Verðmunurinn á milli töskunnar og pokans er gífurlegur en á Íslandi kostar Ikea-pokinn 95 krónur en Balenciaga-taskan kostar um 235.000 íslenskra króna. Munurinn liggur þó ekki einungis í verðmuninum. Ikea-pokinn er búinn til úr plasti á meðan Balenciaga-taskan er gerð úr glansandi leðri.