6.000 króna strigaskórnir sem Katrín elskar

Katrín er ekki alltaf á háum hælum.
Katrín er ekki alltaf á háum hælum. Skjáskot / Daily Mail

Katrín, hertogaynja af Cambridge, er tískufyrirmynd kvenna um gervalla veröld, en föt sem hún klæðist rjúka jafnan úr hillunum. Sér í lagi ef hún lætur sjá sig á almannafæri í fatnaði sem kostar ekki annan handlegginn.

Það þarf því  ekki að undra að sala á strigaskóm frá ítalska merkinu Superga hafi tvöfaldast síðustu misserin, eins og fram kemur í frétt Daily Mail.

Katrín er ekki eini aðdáandi skónna því tískupían Alexa Chung hefur einnig sést klæðast þeim, sem og fyrirsætan Karlie Kloss og leikkonan Emma Watson.

Skórnir eru á viðráðanlegu verði, en þeir kosta 50 sterlingspund eða rétt rúmar 6.400 íslenskar krónur.

Katrín klæðist skónum gjarnan við svartar, þröngar gallabuxur.
Katrín klæðist skónum gjarnan við svartar, þröngar gallabuxur. Skjáskot / Daily Mail
Skórnir fara vel á fæti.
Skórnir fara vel á fæti. Skjáskot / Daily Mail
Katrín nýtir hvert tækifæri til að skarta skónum.
Katrín nýtir hvert tækifæri til að skarta skónum. Skjáskot Daily Mail
Það er ekkert að því að nýta fötin sín vel.
Það er ekkert að því að nýta fötin sín vel. Skjáskot / Daily Mail
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál