Klæðnaður kvenna vekur gjarnan meiri athygli en karla. Nú hefur Michelle Obama upplýst að eiginmaður hennar, Barack Obama, hafi klæðst sama smókingnum í öll þau átta ár sem hann var forseti Bandaríkjanna.
Hello greinir frá ávarpi Michelle á Apple's Worldwide Developers ráðstefnunni á dögunum. En þar talaði hún meðal annars um hvernig fylgst hafði verið með öllu því sem hún klæddist, hvort sem það voru skartgripir eða skór. Aldrei hafi hinsvegar verið minnst á það að Barack hafi verið í sama smókingnum öll átta árin.