Íslendingar eru mikið smekkfólk og afar tískumeðvitaðir einstaklingar. Það þarf því ekki að undra að hér úi og grúi allt af sérlega vel klæddu fólki.
Á dögunum birti Smartland lista yfir best klæddu íslensku karlmennina, en nú er komið að konunum. Það er nefnilega vart þverfótað fyrir smekklegum konum á Íslandi.
Frétt Smartlandi: Best klæddu karlar landsins
Stílistinn Ellen Loftsdóttir er töffari af guðs náð. Stíllinn hennar er áreynslulaus og skemmtilegur.
Anna Maggý
Björg Ingadóttir, eigandi Spaksmannsspjara, er með klassískan og flottan stíl.
Morgunblaðið/Ófeigur Lýðsson
Manúela Ósk er með puttann á púlsinum þegar kemur að tísku. Hún á gott safn af flottum íþrótta- og götufötum og klæðist gjarnan bleikum flíkum.
Skjáskot / Instagram
Andrea Magnúsdóttir fatahönnuður hefur getið sér gott orð fyrir fagrar flíkur sem hún hannar undir merkinu AndreA. Hún hefur einnig fallegan stíl sem tekið er eftir.
Ljósmyndari / Aldís Pálsdóttir
Anna Fríða Gísladóttir, markaðsstjóri Domino's á Íslandi, kann að klæða sig, en stíll hennar er dömulegur og fallegur.
Morgunblaðið / Ófeigur Lýðsson
Liv Bergþórsdóttur, forstjóra Nova, ferst vel úr hendi að raða saman fallegum og stílhreinum fötum.
AÐSEND
Birgitta Líf Björnsdóttir, samfélagsmiðlastjóri World Class og flugfreyja, kann vel að meta falleg föt. Hún tekur sig jafn-vel út í síðkjólum og æfingafatnaði.
Saga Sig hefur litríkan og líflegan stíl, sem sker sig úr. Hún eltist ekki við tískustrauma, heldur klæðist því sem henni þykir fallegt.
Ljósmyndari / Bjarni Sig
Helga Ólafsdóttir, yfirhönnuður og eigandi iglo+indi, er sérlega smart. Hér er klæðist hún empwr-peysu sem var framleidd til styrktar Un Women.
mbl.is/Stella Andrea
Ingibjörg Örlygsdóttir, eða Inga á Nasa eins og hún er gjarnan kölluð, klæðist ekki hverju sem er.
Ljósmynd / Hanna Andrésdóttir
Svala Björgvinsdóttir hefur lengi verið þekkt fyrir töff stíl, en hún fer svo sannarlega sínar eigin leiðir.
Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri hefur sígildan stíl og sómir sér vel á lista yfir best klæddu konur Íslands.
Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fyrirsætan og verslunarstjórinn Andrea Röfn Jónasdóttir er með skemmtilegan og látlausan stíl.
Facebook
Aldís María Firman (lengst til vinstri) hefur svo sannarlega næmt auga fyrir kjólum. Hér skartar hún Margot-kjól frá Roksanda, sem ekki ómerkari konur en Melania Trump og Máxima Hollandsdrottning hafa einnig klæðst.
Ljósmynd / samsett