Imre Çeçen er dugleg að birta myndir af sér á Instagram. Nýlega birti hún mynd af sér á Instagram þar sem hún lá á sundlaugarbakka. Önnur myndin sýndi töluvert mjórri læri en hin.
„Að búa til læragap og mjóa fótleggi var mjög erfitt. Ég þurfti að fetta bakið brjálæðislega, halda fótleggjunum uppi (mikil magavöðvavinna í gangi) og ég þurfti að sitja á endanum á bakkanum sem gerði það að verkum að ég datt næstum því út í,“ skrifaði Çeçen við myndina sína á Instagram.
Çeçen bendir á að stelpur hafi miklar áhyggjur af því að lærin á þeim virki stór þegar þær sitja en það sé hins vegar eðlilegast í heimi. Kannski það sé gott að hafa þessa mynd í huga í sumar en það eru örugglega ófáar konur sem eiga eftir að birta myndir af sér af sundlaugarbakkanum.