Það lítur út fyrir að Melania Trump sé komin í sumargírinn, að minnsta kosti klæddist hún fallegum gulum síðkjól þegar forsætisráðherra Indlands, Narendra Modi, heimsótti Trump-hjónin í Hvíta húsið.
Forsetafrúin sem á það til að velja föt sem eru í stífari kantinum minnti heldur betur á það að sumarið er komið. Kjóllinn er léttur, gulur með blómamynstri frá Emilio Pucci og kostar hann tæpar 290 þúsund krónur.
Þykk belti eru að verða hluti af einkennisstíl frú Trump og hefur beltið eflaust heillað hana við kjólinn en á kjólnum er áfast svart belti með sama blómamynstrinu og er á gula efninu.