Ef þú ert orðin þreytt á hárgreiðslunni sem þú ert jafnan með er kannski kominn tími á að prófa fléttu sem kallast kínversk stiga flétta. Hún er tilvalin í ræktina eða við fín tilefni.
Fléttan er ekki flókin í framkvæmd, því er um að gera að reyna við hana heima. Hægt er að byrja að setja hárið í venjulegt tagl og flétta þaðan eða flétta bara helminginn af hárinu eins og sést á myndinni að ofan.
Myndbandið sýnir á góðan hátt hvernig fléttan virkar fyrir sig.