Flestar konur ætla bara að gifta sig einu sinni og er því mikilvægt að finna rétta brúðarkjólinn. Daily Mail tók saman lista yfir nokkra stórfurðulega kjóla. Ekki er vitað hvort að markmiðið hafi verið að vera í skrítnum kjól, kjóllinn hafi elst svona illa eða hvað. En það er að minnsta kosti ólíklegt að brúðkaupsgestirnir gleymi kjólunum.
Ef það hefur einhvern tíman verið réttur tími til þess að kalla brúðarkjól rjómatertukjól þá er þetta eflaust kjóllinn.
Spurning hvort að þessi hjón hafi verið með lítið á milli handanna og hafi ákváðið að nota líkamsmálningu í stað hefðbundins fatnaðar.
Þessi kona hefur eflaust viljað vera viss um að hún væri eldheit á brúðkaupsdeginum.
Þessi kona var nýbökuð eiginkona.
það dugði ekki að láta hvíta litinn eiga sig.
Stundum passar kjóllinn bara ekki alveg nógu vel.
Það hefur eflaust verið nóg af glamúr í brúðkaupi þessarar konu.
Augljóst þema í gangi í þessu brúðkaupi.