Söngkonan Rihanna hannaði nýverið nýja línu fyrir Puma. Söngkonan var að sjálfsögðu mætt í íþróttagalla á tískuvikunni í New York.
Að undanförnu hafa gömlu góðu smelluíþróttabuxurnar gengið í gegnum endurnýjun lífdaga og segja má að söngkonan hafi tekið tískuna á næsta stig þegar hún mætti í eftirpartý eftir tískusýningu sína.
Það skiptir greinilega ekki máli hvort að söngkonan klæðist galakjól eða íþróttafötum, hún er alltaf jafnglæsileg. Í bleikum pinnahælum við bleikan íþróttagalla, íþróttabrjóstahaldara og netabuxur stal hún senunni. Fötin eru hluti af Fenty-línu hennar fyrir Puma.