Í 20 þúsund króna kjól á fyrsta opinbera viðburðinum

Markle fékk ekki að sitja við hlið síns heittelskaða.
Markle fékk ekki að sitja við hlið síns heittelskaða. AFP

Harry Bretaprins og Meghan Markle brugðu undir sig betri fætinum á dögunum þegar þau skelltu sér saman opnunarhátíð Invictus-leikanna í Toronto.

Frétt mbl.is: (Næstum) saman í opinberri heimsókn

Skötuhjúin fengu þó ekki að sitja saman en Harry sat í stúku hjá forsetafrú Bandaríkjanna og forsætisráðherra Kanada, meðal annarra. Markle var hins vegar holað niður í áhorfendaskaranum.

Leikkonan virðist þó ekki hafa látið það á sig fá, heldur virðist hún hafa skemmt sér konunglega. Klæðnaður hennar var heldur ekki af verri endanum, en hún skartaði forláta plómulituðum kjól frá Aritzia. Við kjólinn klæddist hún samlitum leðurjakka frá Mackage.

Að sjálfsögðu seldust bæði kjóllinn og jakkinn upp á svipstundu, eins og sjá má í frétt Telegraph, enda Markle mikil tískufyrirmynd kvenna um víða veröld.

Dressið fór Markle ákaflega vel.
Dressið fór Markle ákaflega vel. Getty
Glatt var á hjalla, eins og sjá má.
Glatt var á hjalla, eins og sjá má. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál